Miðstjórn ASÍ ályktar um fækkun starfa í fiskvinnslu

29. 03, 2017

Reykjavík, 29. mars 2017Ályktun miðstjórnar ASÍ um fækkun á störfum í fiskvinnsluMiðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun á störfum í fiskvinnslu víða um land. Hótanir forsvarsmanna fyrirtækja í sjávarútvegi um flutning á störfum fiskverkafólks úr landi lýsa miklum hroka og skorti á samfélagslegri ábyrgð. Slíkar hótanir kalla á endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar þar sem tekið yrði sérstaklega á þessum vanda til að tryggja betur atvinnuöryggi í landvinnslunni. Þeim fyrirtækjum sem fara með afnotarétt af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar ber skylda til að tryggja að arðurinn af henni renni til samfélagsins en ekki eingöngu til eigenda sjávarútvegs fyrirtækjanna. Launafólk í heilu byggðarlögunum á stöðugt á hættu að missa lífsviðurværi sitt vegna tilfærslu aflaheimilda og hagræðingaraðgerða í sjávarútvegi sem hafa það eina markmið að hámarka gróða eigendanna. Mikið hefur skort á réttláta skiptingu arðs af fiskveiðiheimildum og löngu tímabært að sjávarútvegurinn greiði sanngjarnt afgjald fyrir afnotaréttinn sem m.a. nýtist til uppbyggingar í þeim byggðarlögum sem verða fyrir barðinu á breytingum í greininni.