[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ custom_padding=“1px|||“][et_pb_row admin_label=“row“ custom_padding=“2px|||“ custom_margin=“|||“][et_pb_column type=“4_4″ parallax=“off“ parallax_method=“on“][et_pb_text admin_label=“Text“]
Full orlofsuppbót árið 2017 er 46.500 kr.
Orlofsuppbót á að koma til greiðslu 1. júní ár hvert. Hjá starfsfólki Hveragerðisbæjar, Kópavogsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Mosfellsbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss greiðist hún 1. maí.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu, 1. maí – 30. apríl hvert ár, eiga rétt á fullri uppbót annars greiðist hún í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á orlofsuppbótina.
Einkafyrirtæki – Samtök atvinnulífsins: Fullt ársstarf m.v. 45 vikur eða 1800 klst. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða er í starfi fyrstu viku í maí eiga rétt á uppbót.
Ríki, hjúkrunarheimili, Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög: Þeir sem hafa starfað 13 vikur samfellt á orlofsárinu eða eru í starfi til 30. apríl eiga rétt á uppbót.
Orlofsuppbót á að gera upp við starfslok.
[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]