Elku Björnsdóttir minnst á afmælisdag hennar

[et_pb_section fb_built=“1″ custom_padding=“13px|0px|54px|0px“ admin_label=“section“][et_pb_row custom_padding=“1px|18px|28px|15px“ custom_margin=“|||“ admin_label=“row“][et_pb_column type=“4_4″ parallax=“off“ parallax_method=“on“][et_pb_text admin_label=“Text“]

Elku Björnsdóttur verður minnst á afmælisdag hennar 7. september nk. Elka er best þekkt fyrir dagbækur sem hún skrifaði á árunum 1915–1923 sem lýsa á mjög áhrifamikinn hátt lífi verkafólks á þessum árum. Dagbók Elku er meðal fárra dagbóka kvenna frá þessum tíma og var bók sagnfræðinganna Hilmu Gunnarsdóttur og Sigurðar Gylfa Magnússonar til að vekja athygli almennings á lífi hennar fyrir nokkrum árum þegar bókin kom út. Elku verður minnst með hátíðarstund í Hólavallakirkjugarði og síðan með málþingi í Tjarnarsalnum.

Elka Björnsdóttir er fædd árið1881 og ólst upp á Skálabrekku í Þingvallasveit. Síðan flutti hún árið 1906 til Reykjavíkur þar sem hún bjó til æviloka. Elka var alla tíð mjög heilsutæp og lést aðeins 43 ára að aldri.

Elka starfaði alla ævi sem verkakona í Reykjavík. Hún var tók mikinn þátt í félagslífi þessa tíma bæði í trúarsöfunið, þátttakandi í verkalýðsmálum, áhugasöm um menntir, menningu og framfarir en um leið íhaldssöm og fastheldin á gamlar hefðir. Hún var jafnréttissinnuð fylgdist vel með þjóðmálunum.

Saga Elku sem varðveist hefur í dagbókum hennar veitir einstaka innsýn inn í lífsbaráttu, launamál, afkomu og aðbúnað verkafólks. Vinnuharka, húsnæðisekla, vöruskömmtun, dýrtíð, alvarleg veikindi og óhagstætt tíðarfar settu svip á hina daglegu lífsbaráttu en einnig má greina í texta Elku sterka samhjálp, kröftuga stéttarbarátta og sókn í menntun og menningu, eins og segir í bók sagnfræðinganna.

[/et_pb_text][et_pb_text admin_label=“Text“ background_color=“#e0e0e0″ use_border_color=“on“ border_color=“#2b2b2b“ custom_margin=“|||“ custom_padding=“|20px|15px|15px“]

Málþing og viðburður til heiðurs

Elku Björnsdóttur verkakonu

7. september

Kl. 13.00 Hólavallagarður við Suðurgötu

– Ávarp Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

– Söngur – Jónína Björg Magnúsdóttir söng- og verkakona.

– Minningarmark Elku Björnsdóttur afhjúpað í Hólavallagarði.

Kl. 13.30 Gönguferð frá Hólavallagarði í Tjarnarsal ráðhússins – lesið upp úr dagbókum Elku Björnsdóttur á leiðinni.

Kl. 14.00 Málþing um Elku Björnsdóttur verkakonu og stöðu verkakvenna þá og nú.

– Saga Elku Björnsdóttur. Hilma Gunnarsdóttir sagnfræðingur.

– Staða verkakvenna þá og nú. Sigurrós Kristinsdóttir varaformaður Eflingar-stéttarfélags.

– Svipmyndir af verkakonum í Reykjavík – Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

Málþingsstjóri Líf Magneudóttir forseti borgarstjórnar.

Að málþinginu stendur Reykjavíkurborg í samvinnu við Alþýðusamband Íslands, Starfsgreinasamband Íslands og Eflingu-stéttarfélag, sem og Borgarsögusafn/Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Minningarmark Elku Björnsdóttur í Hólavallagarði er reist að frumkvæði Reykjavíkurborgar að höfðu samráði við ættingja Elku Björnsdóttur. Steinsmiðja S. Helgasonar gaf steininn en áletrunin og önnur vinna við steininn og uppsetningu hans er kostuð af Reykjavíkurborg.

[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]