Fréttatilkynning til fjölmiðlaVegna ýmissa fullyrðinga sem komu fram á vefmiðlinum Visir.is í gær, þann 20. febrúar, þar sem m.a. er rætt við Gísla Tryggvason, lögmann B-lista framboðs til stjórnar Eflingar, vill félagið koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri:Erindi Gísla Tryggvasonar barst skrifstofu Eflingar kl. 11.00 að morgni þessa sama dags. Það var stílað á stjórn Eflingar. Formaður félagsins brást þegar við með því að boða stjórnarfund nk. föstudag. Þar verður erindið tekið fyrir og því svarað.Stjórnarmenn í Eflingu eru vinnandi fólk á ýmsum vinnustöðum og stjórnarfundi verður að boða með ákveðnum fyrirvara. Lögmaður B-lista, Gísli Tryggvason, hringdi í Eflingu sex dögum fyrr, þar sem honum var bent á að senda inn formlegt bréf til stjórnar félagsins. Það barst loks í gærmorgun eins og áður segir.Það vekur furðu að lögmaðurinn skuli kvarta undan því að fá ekki afgreiðslu erindis nokkrum klukkustundum eftir að það er sent. Erindi sent stjórn verður ekki afgreitt af öðrum en stjórn.Félagið hafnar algerlega þeirri fullyrðingu að framboðum til stjórnar sé mismunað með einhverjum hætti. Það er ekkert í kynningu framboðanna, hvorki á heimasíðu Eflingar né í kynningarefni Fréttablaðs Eflingar eða í sérstöku sameiginlegu kynningarefni framboðanna sem styður þá fullyrðingu, enda allt unnið í fullu samráði við bæði framboðin, án efnislegrar aðkomu og afskipta stjórnar og skrifstofu félagsins. Allur texti er byggður á staðreyndum. Fenginn var sérstakur starfsmaður til að vinna að sameiginlegu kynningarefni og nákvæmlega samskonar samráð haft við bæði framboðin í því sambandi. Jafnframt skal bent á að stjórn Eflingar ákvað að veita hvoru framboði um sig styrk upp á 700.000 kr. til að standa straum af kostnaði við framboðin.Þær fullyrðingar sem koma fram í máli lögmannsins um að framboðunum sé mismunað varðandi umfjöllun og kynningarefni eru beinlínis rangar. Efling-stéttarfélag harmar það að fréttamaðurinn skyldi ekki hafa samband við félagið áður en villandi og rangar fréttir voru sendar út.Upphlaup og málatilbúnaður af þessu tagi þjónar einungis einum tilgangi, að grafa undan trausti á félaginu til lengri tíma og þar með styrk þess. Allar kannanir á trausti til Eflingar-stéttarfélags sýna svo ekki verður um villst, að félagið nýtur yfirgnæfandi trausts félagsmanna. Því er erfitt að átta sig á tilganginum með því að grafa undan þessu trausti með fölskum fréttum af þessu tagi. Það bitnar ekki á öðrum en félagsmönnum og félaginu sjálfu.Það er ámælisvert að Eflingu-stéttarfélagi var ekki gefinn kostur á að bregðast við fréttinni sem þess vegna fór athugasemdalaust og mjög lituð skoðunum lögmannsins í stað þess að birta frásögn þar sem jafnræðis væri gætt milli framboðanna. Efling-stéttarfélag harmar þessi vinnubrögð.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.