Dagsbrúnarfyrirlestur 2018 – eftirlaun aldraðra

19. 03, 2018

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ custom_padding=“10px|0px|54px|0px“][et_pb_row admin_label=“row“][et_pb_column type=“4_4″ parallax=“off“ parallax_method=“on“][et_pb_text admin_label=“Text“]

Hinn árlegi Dagsbrúnarfyrirlestur verður haldinn í hádeginu fimmtudaginn 22. mars næstkomandi, kl. 12:00 til 13:15. Að fyrirlestrinum standa auk Bókasafns Dagsbrúnar, Efling-stéttarfélag og ReykjavíkurAkademían.

Dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, mun fjalla um eftirlaun aldraðra hér á landi og þróunina í kjörum þeirra.

Barátta verkalýðsfélaga fyrir auknum félagslegum réttindum á borð við lífeyrisréttindi er ekki eins sýnileg og baráttan fyrir hækkuðu kaupgjaldi. Af þessum sökum munu Dagsbrúnarfyrirlestrar RA til næstu ára beina sjónum að félagslegum réttindum launþega, þá ekki síst réttindum þeirra sem hverfa tímabundið eða ótímabundið af vinnumarkaði sökum aldurs eða heilsutjóns.

Samkvæmt venju er fyrirlesturinn haldinn í fundarsal RA í Bókasafni Dagsbrúnar á fjórðu hæð að Þórunnartúni 2.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Léttar veitingar í boði.

Bókasafn Dagsbrúnar var stofnað á 50 ára afmæli Verkamannafélagsins Dagsbrúnar þann 26. janúar 1956 þegar Guðrún Pálsdóttir, ekkja Héðins Valdimarssonar, gaf félaginu bókasafn manns síns til minningar um hann. Safnið var fyrst til húsa í félagsheimili múrara og rafvirkja að Freyjugötu 27 en var svo á ýmsum stöðum í Reykjavík þar til það flutti í húsakynni ReykjavíkurAkademíunnar árið 2003. Meginstofn safnsins eru bókagjafir úr einkasöfnum einstaklinga.

 

[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]