[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ custom_padding=“0px|0px|54px|0px“][et_pb_row admin_label=“row“ custom_padding=“5px|0px|27px|0px“][et_pb_column type=“4_4″ parallax=“off“ parallax_method=“on“][et_pb_text admin_label=“Text“]
Nú í apríl undirrituðu Efling stéttarfélag og Starfsafl samning við Mími um hæfnigreiningu sex starfa.
Við hæfnigreiningarnar er notuð aðferð samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem byggir á efni frá kanadíska ráðgjafafyrirtækinu Human Resource System Group. Greiningaraðferðin byggir á þrepaskiptum hæfniþáttum þar sem búið er að skilgreina á hlutlægan hátt þá persónulegu og faglegu hæfni sem skiptir megin máli á vinnumarkaði.
Niðurstöður hæfnigreininga eru starfaprófílar en þeir innihalda skilgreiningu starfsins og hæfnikröfur sem nýtast bæði sem viðmið í námskrám og í raunfærnimati.
Þess utan geta hæfnigreiningar starfa nýst á margvíslegan máta svo sem við skipulag þjálfunar og gerð fræðsluáætlana, gerð starfsþróunarstefnu og starfsþróunaráætlana og fleira.
Þau störf sem verða hæfnigreind á árinu eru eftirfarandi:
- Almenn störf og vaktstjórn á skyndibitastöðum (2 störf)
- Hópferðabílstjórar sem fara með vaktstjórn
- Öryggis- og dyraverðir (2 störf)
- Smur- og dekkjaþjónusta
[/et_pb_text][et_pb_toggle title=“Starfaprófíll – Störf við almenna umönnun á hjúkrunarheimilum“ admin_label=“Toggle“ title_font=“|on|||“]
Kjarni starfs
Starfsmaður við almenna umönnun á hjúkrunarheimilum aðstoðar íbúa í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði og viðhalda sjálfstæði og vellíðan þeirra. Starfsmaður vinnur undir leiðsögn og í samræmi við verklagsreglur. Næsti yfirmaður er deildarstjóri/hjúkrunarfræðingur. Starfsmaður aðstoðar íbúa við athafnir daglegs lífs (félagslegar, líkamlegar og andlegar) í samræmi við verklagsreglur en á sama tíma þarf hann að hafa frumkvæði að því að laga sig að breytilegum þörfum íbúa. Hann ber ábyrgð á að skipuleggja og sinna þeim viðfangsefnum sem honum eru falin og tekur þátt í aðlögun nýrra starfsmanna þegar það á við. Starfinu fylgja mikil samskipti við íbúa, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk. Umhyggja og virðing á að endurspeglast í öllum þáttum starfsins. Á hjúkrunarheimilum er unnin vaktavinna, morgun-, kvöld- og næturvaktir. Starfsmaður þarf að gæta trúnaðar og fylgja öllum öryggisreglum. Hann þarf jafnframt stöðugt að sýna aðgæslu og athygli í starfi sínu.
Viðfangsefni starfsins: Niðurstaða
- Aðhlynning
- Aðstoðar íbúa við athafnir daglegs lífs (ADL) samkvæmt verklýsingu
- Sinnir reglubundnu eftirliti og svarar bjöllum
- Fylgist með andlegum og líkamlegum þörfum íbúa og bregst við í samræmi við verklýsingu
- Gefur lyf (sem búið er að hafa til og skammta)
- Fylgjast með og aðstoðar við næringu og vökvainntekt
- Skráir í skema eins og við á (t.d. snúningsskema og vökvaskema)
- Hvetur og tekur þátt í daglegu lífi íbúa af nærgætni og umhyggju
- Fylgir íbúum í tómstundir og þjálfun
- Heimilisstörf
- Sinnir almennum heimilisstörfum
- Sér um að ganga frá og halda umhverfinu snyrtilegu
- Þvo og ganga frá þvotti
- Skipta um, þrífa og búa um rúm
- Frágangur og áfylling á skoli og líni
- Þrif á hjálpartækjum
- Samskipti
- Dagleg samskipti við íbúa í samræmi við þarfir þeirra og athafnir hverju sinni
- Dagleg samskipti við samstarfsfólk, upplýsingagjöf á vakt og á vaktaskiptum (rapport)
- Samskipti við aðstandendur íbúa, upplýsingagjöf o.fl.
Önnur lykilatriði:
Starfsmaður á hjúkrunarheimili þarf að gæta trúnaðar og skrifar undir ákvæði um þagnarskyldu þegar hann hefur störf.
[/et_pb_toggle][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]