Starfsfólk verði ekki látið bíða stundinni lengur

Efling-stéttarfélag lýsir áhyggjum af þeim töfum sem orðið hafa á framkvæmd launaþróunartryggingar af hálfu aðildarfélaga Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV).Samið var um afturvirkar launahækkanir með samkomulagi dags. 21. september 2017 milli Alþýðusambands Íslands og ríkis og Reykjavíkurborgar, þar með talið stofnana sem starfa á grundvelli þjónustusamninga við Sjúkratryggingar Íslands.Því miður hafa hjúkrunarheimili og önnur fyrirtæki innan SFV dregið framkvæmd þessara launahækkana. Tafirnar ganga í berhögg við fyrrnefnt samkomulag og eru auk þess íþyngjandi og ósanngjarnar gagnvart félagsmönnum sem reiða sig á hraða og örugga greiðslu. Efling telur ljóst að þau fyrirtæki í velferðarþjónustu sem um ræðir geti ekki komið sér undan skjótri framkvæmd þeirra breytinga sem kveðið er á um, en ríkið og þar með taldir starfsmenn Landspítalans fengu þessar greiðslur fyrir tveimur mánuðum síðan.Efling kallar eftir því að vangoldnar afturvirkar hækkanir og önnur laun sem félagsmenn eiga skýlausan rétt á verði greidd þegar í stað og starfsfólk þeirra fyrirtækja sem um ræðir ekki látið bíða stundinni lengur.Fyrir hönd Eflingar,Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður