Láglaunaborgin Reykjavík?

23. 05, 2018

Framboðsfundur á vegum stéttarfélaga í Reykjavík, fimmtudaginn 24. maí kl. 17 -19. Efling, VR, SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar — stærstu stéttarfélögin innan ASÍ og BSRB með starfssvæði í Reykjavík — efna til sameiginlegs opins fundar með fulltrúum framboðanna í Reykjavík, til að ræða um þau brýnu kjaramál sem brenna á starfsfólki Reykjavíkurborgar og öðru launafólki í borginni.Áherslumál fundarins eru launa- og húsnæðismál.

  • Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bæta launakjör, auka jöfnuð og vinna gegn stéttskiptingu?
  • Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bregðast við því óboðlega ástandi sem nú ríkir á leigumarkaði?

Fundurinn er opinn öllum en félögin hvetja félagsmenn sína sérstaklega til að mæta.Fundurinn verður haldinn á Grand hótel í salnum Hvammi, fimmtudaginn 24. maí kl. 17-19.Fundarstjórar verða Sigmar Guðmundsson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir.Fundinum verður streymt á Facebook síðu viðburðarins.Fundurinn verður textatúlkaður á ensku.Gos, kaffi og létt snarl í boði.