Framboðsfundur á vegum stéttarfélaga í Reykjavík, fimmtudaginn 24. maí kl. 17 -19. Efling, VR, SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar — stærstu stéttarfélögin innan ASÍ og BSRB með starfssvæði í Reykjavík — efna til sameiginlegs opins fundar með fulltrúum framboðanna í Reykjavík, til að ræða um þau brýnu kjaramál sem brenna á starfsfólki Reykjavíkurborgar og öðru launafólki í borginni.Áherslumál fundarins eru launa- og húsnæðismál.
- Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bæta launakjör, auka jöfnuð og vinna gegn stéttskiptingu?
- Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bregðast við því óboðlega ástandi sem nú ríkir á leigumarkaði?
