Stefán Ólafsson ráðinn til starfa hjá Eflingu-stéttarfélagi

25. 06, 2018

[et_pb_section bb_built=“1″][et_pb_row][et_pb_column type=“4_4″][et_pb_text]Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði hefur verið ráðinn til starfa sem sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu-stéttarfélagi. Stefán hefur störf í ágúst á skrifstofum Eflingar að Guðrúnartúni 1 og verður í hálfu starfi meðfram því sem hann stundar áfram rannsóknir og kennslu í háskólasamfélaginu. Í starfi sínu hjá Eflingu mun Stefán leiða rannsóknar- og greiningarvinnu auk þess sem hann verður formanni og stjórnar til ráðgjafar um stefnumótun í kjaramálum og á tengdum sviðum.Stefán á að baki afkastamikinn feril sem fræðimaður og er höfundur grundvallarrita um lífskjör og velferð á Íslandi. Hann lauk doktorsprófi í félagsfræði árið 1982 frá Oxford háskóla á Bretlandseyjum og hefur verið fastráðinn við Háskóla Íslands síðan 1979. Af ritum hans má nefna bækurnar Hagvöxtur og hugarfar frá 1996 og Íslenska leiðin frá 1999 en nýjasta rit hans, samið með Arnaldi Sölva Kristjánssyni, er Ójöfnuður á Íslandi sem kom út á þessu ári. Stefán hefur að undanförnu flutt fjölda erinda með samantektum úr síðastnefndu bókinni, þar á meðal fyrir trúnaðarráð Eflingar þann 7. júní síðastliðinn.Ráðning Stefáns til Eflingar styrkir mjög stöðu félagsins þegar kemur að getu til sjálfstæðrar rannsóknarvinnu og stefnumótunar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði: „Það eru ekki margir fræðimenn sem hafa sérhæft sig í aðstæðum hinna verst settu á Íslandi og að einn sá fremsti þeirra sé kominn til starfa hjá Eflingu er gríðarlegur styrkur. Rannsóknir Stefáns á ójöfnuði eru sláandi og segja allt aðra sögu en málflutningur SA og ASÍ. Ég mun leggja mikla áherslu á baráttuna gegn ójöfnuði í komandi kjarasamningum og að hafa Stefán mér við hlið í þeirri baráttu verður ómetanlegt.“[/et_pb_text][et_pb_image _builder_version=“3.2″ src=“https://www.efling.is/wp-content/uploads/2018/06/stefan_til_starfa.jpg“ /][et_pb_text _builder_version=“3.2″]Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar-stéttarfélags býður Stefán Ólafsson velkominn til starfa hjá félaginu.[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]