Mundu eftir desemberuppbótinni!

26. 11, 2018

Desemberuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á desemberuppbótina.

SA – Samtök atvinnulífsins – Almenni markaðurinn (einkafyrirtæki) 89.000 kr.
Þeir sem eru í starfi fyrstu viku í desember eða hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eiga rétt á uppbót eigi síðar en 15. desember. Fullt ársstarf m.v. 45 vikur eða 1800 klst. á tímabilinu 1. janúar – 31. desember.

Reykjavíkurborg 97.100 kr. og ríkið/hjúkrunarheimili 89.000 kr.
Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað í 13 vikur samfellt á árinu skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október.

Sveitarfélög 113.000 kr.
Þeir sem starfað hafa frá 1. september skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember.
Þeir sem láta af störfum á árinu eiga rétt á desemberuppbót hafi þeir starfað samfellt í 6 mánuði. Greitt er miðað við starfstíma og starfshlutfall og miðast þá tímabilið við 1. janúar – 31. desember

___________________________________

Desemberuppbót er greidd m.v. starfshlutfall og starfstíma.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.