Verkalýðsbarátta í tengihagkerfinu- Lærum af reynslu Uber bílstjóra í LondonLaugardaginn 10 nóvember stendur Efling stéttarfélag fyrir fundi um erfiðleikana sem verktakar, undirverktakar og lausavinnufólk mætir í tengihagkerfinu. Gabrielle Jeliazkov sem er með mikla reynslu af verkalýðsbaráttu bílstjóra og veitingahúsastarfsmanna á Bretlandi mun varpa ljósi á þau vandamál sem upp koma og hvernig má leysa þau.Bílstjórar sem unnu fyrir Ubereats og Deliveroo í London eru ráðnir sem undirverktakar, sem þýðir að þeir eru utan laga stéttarfélaga í Bretlandi og hafa ekki rétt á bótum, stéttarfélagsgreiðslum eða öðrum réttindum sem hefðbundnir launþegar hafa. Alþjóðaleg samtök iðnverkamanna (Industrial Workers of the world couriers network) voru stofnuð til að samræma verkfallsaðgerðir í kjölfar mikilla mótmæla og verkfalla sem efnt var til vegna lækkunar á greiðslum til sendla hjá Ubereats og Deliveroo.Í Bretlandi rétt eins og á Íslandi er nauðsynlegt að þróa og uppfæra aðgerðaráætlun sem taka á þeim vandamálum sem upp koma vegna verktakasamninga og samninga lausavinnufólks. Þar sem bílstjórum er þröngvað í ótryggar vinnuaðstæður, þá virka verkföllin sem lærdómsleið til að ræða úrræði/aðgerðir vegna fyrirtækja með óskráða verkamenn, samningaviðræðna við alþjóðleg fyrirtæki, og verkfalla/samstöðu á milli atvinnugreina.Gabrielle mun gefa kynningu á þessum málefnum og ræða reynslu sína og svo verður opnað fyrir spurningar úr sal.Fundurinn hefst 14:30 í Gerðubergi og lýkur eigi síðar en klukkan 16:00Boðið verður upp á köku og kaffi í lok fundar og að venju er boðið upp á ókeypis barnapössun í bóksasafninu í Gerðubergi gegn skráningu á vef Eflingar.Streymt verður af fundinum á Facebook síðu Eflingar.