Sara Öldudóttir, sérfræðingur hjá Eflingu-stéttarfélagi skrifarÍbúðalánasjóður og Velferðarráðuneytið efndu til húsnæðisþings sem haldið var á Hótel Nordica þriðjudaginn 30. október. Lögfesting þess sem árlegs viðburðar og nýtilkomin stefnumörkun og áætlanagerð í húsnæðismálum bendir til þess að stjórnvöld séu að vakna til vitundar um málaflokkinn. Því miður þurfti til þess vondan draum — martröð tekjulágra og viðkvæmra hópa á íslenskum húsnæðis- og leigumarkaði. Í titli þingsins þótti ástæða til að undirstrika sérstaklega að húsnæði eigi að vera “fyrir alla”. Eins og Ólafía Hrönn Jónsdóttir benti á í erindi sínu er titilinn afhjúpandi fyrir núverandi ófremdarástand þar sem húsnæði er aðeins “fyrir suma”!Ofan í skerðingar á barna- og húsnæðisbótum og rýrnun persónuafsláttar síðustu ár hafa aðstæður á húsnæðismarkaði haft grafalvarlegar afleiðingar fyrir kjör almennings. Tekjulágir sitja fastir í óöryggi tímabundinna leigusamninga og hömlulausra hækkana á leiguverði. Fjórðungur barnafjölskyldna í leiguhúsnæði á von á því að missa húsnæði sitt á næstunni. Sparnaður er fjarlægur draumur fyrir marga og nálarauga greiðslumatsins er svo enn önnur hindrunin fyrir fólk sem jafnvel hefur staðið skil á himinháum leiguupphæðum um árabil.Staða erlends fólks á húsnæðismarkaði er sérstaklega veik og gera þarf átak í að tryggja aðbúnað farandverkafólks sem hingað kemur. Kaldhæðnislegt er að farandverkafólk, sem er sérlega illa statt í húsnæðismálum, kemur oftar en ekki hingað til lands til þess að vinna við að reisa öðrum húsnæði.Ábyrgð hins opinbera mikilFlestir eru sammála um að nú er brýn þörf á því að veita ungu fólki aukna aðstoð við kaup á fyrstu eign. Þó er einnig ljóst að hluti fólks vill frekar leigja en kaupa húsnæði og aðgengi að leiguhúsnæði er nauðsynlegt erlendu verkafólki sem að dvelur tímabundið á landinu. Það þarf að hætta að nálgast leigumarkað sem afgangsstærð í húsnæðismálum og tryggja lagaleg réttindi leigjenda til framtíðar.Sú greiningarvinna sem nú fer fram hjá Íbúðarlánasjóði er mikilvægur grundvöllur að því að snúa við óheillaþróuninni í húsnæðismálum. Bæta þarf verulega í aðgerðir ríkisstjórnarinnar, umfram það sem samið var um í tengslum við síðustu kjarasamninga. Samhæfðra aðgerða er þörf á öllum stigum húsnæðiskerfisins með aðkomu ríkisvalds, sveitarfélaga, lífeyrissjóða auk aðila vinnumarkaðarins. Það sjónarmið endurspeglaðist í erindum þeirra sem komu fram á húsnæðisþingi. Kröfugerðir almenns verkafólks og verslunarmanna vegna komandi kjarasamninga kveða á um nákvæmlega það.Ísland á nú Norðurlandamet í hlutfalli fólks á lágum launum sem er að sligast undan húsnæðiskostnaði. Það er búið að þinga um málið – nú er komið að aðgerðunum!
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.