Frá Sjúkra- og fræðslusjóðum Eflingar
Skila verður umsóknum, vottorðum og öðrum gögnum til sjúkrasjóða og fræðslusjóða Eflingar í síðasta lagi 14. desember n.k. til að ná útborgun í desember.
Útborgun styrkja og dagpeninga í desember 2018 er fyrirhuguð föstudaginn 21. desember.
Með bestu jóla- og nýárskveðjum og þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Stjórnir og starfsmenn
Sjúkra- og fræðslusjóða Eflingar-stéttarfélags