Skipulagning innflytjenda í Japan – Lexíur fyrir Ísland
Efling býður þér á fyrirlestur þriggja skipuleggjenda frá virkasta stéttarfélagi Japan, Tozen! Félagið hefur farið oftar í verkfall en nokkurt annað stéttarfélag í landinu. Félagið byggir á grasrótarlýðræði og gagnsæi og er eina félagið af sínu tagi í Japan sem er stýrt af útlendingum.
Sunnudaginn 3. mars kl. 14.30 í húsakynnum Eflingar, Guðrúnartúni 1.
Efnisatriði fyrirlestrarins verða: Sagan af Tozen, Skipulag félagsins, Sögur af skipulagningu vinnustaða, og Spurningar og svör.
Fyrirlesarar eru:
- Louis Carlet, stofnandi Tozen, skipuleggjandi og fjármálastjóri.
- Gerome Rothman, vettvangsstjóri og skipuleggjandi. Hann sér um kjaramál tíu svæðisdeila, þar á meðal deildir fyrir fréttastofuna Japan Times og fyrir Apple.
- Hifumi Okunuki, framkvæmdastjóri Tozen. Hún kennir lögfræði verkalýðsfélaga, velferðarkerfis og um stjórnarskrána við kvennaháskólann í Sagami.
———————————————————————
Aðferðir í skipulagningu vinnustaða
Stendur þú í stappi við yfirmanninn þinn? Er verið að brjóta samninginn þinn og snuða þig um réttindi?
Félagssvið Eflingar býður þér á gestafyrirlestur Louis Carlet og Gerome Rothman, skipuleggjenda frá stéttarfélaginu Tozen í höfuðborg Japan. Félaginu er stýrt af innflytjendum þar í landi. Félagið er þekkt fyrir sterkt innra lýðræði, gagnsæi og fjölþjóða þátttöku. Tozen hefur boðað lögleg verkföll oftar en nokkuð annað stéttarfélag í Japan.
Lærum af þeim – mættu á fræðsluna í boði Eflingar.
Þriðjudaginn 5. mars í húsakynnum Eflingar, Guðrúnartúni 1, kl. 19.00.