Verkföll í hótelum og hjá rútufyrirtækjum

Þrjár atkvæðagreiðslur um verkföll eru nú afstaðnar: Í fyrsta lagi meðal starfsfólks á hótelum, í öðru lagi meðal starfsfólks rútufyrirtækja, og í þriðja lagi hjá starfsfólki Almenningsvagna Kynnisferða, sem annast hluta leiðakerfis Strætó BS. Öll verkföllin voru samþykkt með miklum meirihluta.

Hvers vegna er farið í verkfall?

Eigendur fyrirtækja í túristaiðnaði hafa grætt á tá og fingri undanfarin ár, en starfsfólkið sem keyrir rúturnar, þrífur hótelin og sinnir gestum hefur ekki notið góðs af. Þau fá of lág laun, vinna undir mikilli pressu, eru snuðuð um réttindi, og njóta oft ekki virðingar yfirmanna sinna. Krafa Eflingar er sú að lágmarkslaun í landinu verði 425,000 ISK, en þessi krafa hefur ekki verið samþykkt. Þetta verður að breytast og munu verkfallsaðgerðir skapa þrýsting um að kröfum okkar um betri kjör verði mætt.

 

Hvað með dóm Félagsdóms?

Félagsdómur úrskurðaði örverkföll Eflingar, sem gengu út á vissar vinnutakmarkanir, ólögleg. Þau verkföll sem gengu út á venjulega vinnustöðvun, að koma ekki í vinnu á tilteknum tímabilum, standa enn.

 

Hvernig verður greitt úr verkfallssjóði?

Þeir sem fara í verkfall og eru með vakt eða vinnudag þegar verkfallið stendur geta fengið styrk úr sjóðnum. Launatapið verður bætt að fullu, reiknað út frá meðaltali heildartekna undangenginna sex mánaða, upp að 550.000 krónum á mánuði. Hógvær krafa um þátttöku í verkfallsvakt eða skyldum viðburðum verður gerð fyrir úthlutun. Þeir sem ekki komast geta haft samband við félagið 1. og 2. apríl fyrir verkfallsdaga í marsmánuði. Stefnt er að því að greitt verði úr sjóðnum fyrir páska. 

 

Hvenær og hvernig verða verkföllin?

 

Strætóbílstjórar hjá Almenningsvögnum Kynnisferða

  • Á virkum dögum frá 1. apríl til og með 1. maí:
    • Enginn akstur frá 7-9 og 16-18

 

Verkfall í hótelum og rútufyrirtækjum

Verkföll verða frá miðnætti til miðnættis eftirfarandi daga:

  • 22. mars (1 dagur)
  • 28.-29. mars (2 dagar)
  • 3.-5. apríl (3 dagar)
  • 9.-11. apríl (3 dagar)
  • 15.-17. apríl (3 dagar)
  • 23.-25. apríl (3 dagar)
  • 1. maí (þangað til verkfallinu er aflýst)

Lesið verkfallsboðanirnar

Tillaga um vinnustöðvun hjá Almenningsvögnum Kynnisferða

Tillaga að vinnustöðvun á hótelum

Tillaga um vinnustöðvun í hópbifreiðaakstri

Hótelin sem verkföll taka til

Fosshótel Reykjavík Þórunnartún 1, 105 Rvk.
Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38, 105 Rvk.
Fosshótel Baron Barónsstígur 2-4, 101 Rvk.
Hótel Reykjavík Centrum Aðalstræti 16, 101 Rvk.
Fosshótel Rauðará Rauðarárstígur 37, 105 Rvk.
Fosshótel Lind Rauðarárstígur 18, 105 Rvk.
Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, 108 Rvk.
Icelandair Hótel Reykjavík Natura Nauthólsvegur 52, 101 Rvk.
Icelandair Hótel Reykjavík Marina Mýrargata 2-8, 101 Rvk.
Canopy Reykjavík – City Centre Smiðjustígur 4, 101 Rvk.
Reykjavík Konsúlat hótel Hafnarstræti 17-19, 101 Rvk.
Hótel Plaza CenterHotel Aðalstræti 4, 101 Rvk.
CenterHotel Miðgarður Laugavegur 120, 101 Rvk.
Hótel Arnarhvoll CenterHotel Ingólfsstræti 1, 101 Rvk.
Hótel Þingholt CenterHotel Þingholtsstræti 3-5, 101 Rvk.
Hótel Klöpp CenterHotel Klapparstígur 26, 101 Rvk.
Hótel Skjaldbreið CenterHotel Laugavegur 16, 101 Rvk.
Exeter Hotel Tryggvagata 12, 101 Rvk.
Reykjavík Lights Hotel Suðurlandsbraut 12, 108 Rvk.
Skuggi Hótel Hverfisgata 103, 101 Rvk.
Hótel Borg Pósthússtræti 9-11, 101 Rvk.
Storm Hótel Þórunnartún 4, 105 Rvk.
Sand Hótel Laugavegur 34, 101 Rvk.
Apótek Hótel Austurstræti 16, 101 Rvk.
Hótel Cabin Borgartún 32, 105 Rvk.
Hótel Klettur Mjölnisholt 12-14, 105 Rvk.
Hótel Örk Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði
Radisson BLU Hótel Saga Hagatorg 1, 107 Rvk.
Radisson BLU 1919 Hótel Pósthússtræti 2, 101 Rvk.
Hotel Víking Víkingastræti 1-3, 220 Hfj.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, 101 Rvk.
Hótel Frón Laugavegur 22a, 101 Rvk.
Hótel Óðinsvé Þórsgata 1, 202 Rvk.
The Capital Inn Suðurhlíð 35d, 105 Rvk.
City Center Hotel Austurstræti 6, 101 Rvk.
City Park Hotel Ármúli 5j, 108 Rvk.
Kex Hostel Skúlagata 28, 101 Rvk.
101 Hótel Hverfisgata 10, 101 Rvk.
Hótel Leifur Eiríksson Skólavörðustígur 45, 101 Rvk.
Hótel Smári Hlíðasmári 13, 201 Kópavogur