Fundur hópferðabílstjóra í Eflingu

16. 05, 2019

Allir hópferðabílstjórar í Eflingu eru boðnir velkomnir á fund á Kex Hostel, Skúlagötu 28, miðvikudaginn 22. maí kl 19:00 (Gym & Tonik salurinn).

Það er kominn tími til að hrista hópinn saman, auka samstarf og styrkja innbyrðis tengsl hópferðabílstjóra í Eflingu. Farið verður yfir kjarabaráttu vetrarins og markmið fyrir framtíðina frá sjónarhóli hópferðabílstjóra.

Léttar veitingar í boði.