IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Eflingu og Starfsafl mun bjóða upp á námskeið í skyndihjálp og fallvörnum nú á haustönn 2019.Í nýgerðum kjarasamningi Eflingar stéttarfélags og Samtaka atvinnulífsins 2019 er skilgreint að byggingarstarfsmenn eiga rétt á að sækja námskeið í allt að 8 klst. á fyrsta starfsári í skyndihjálp, fallvörnum og öryggi og heilbrigði á vinnustað.IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Eflingu og Starfsafl mun bjóða upp á námskeið í skyndihjálp og fallvörnum nú á haustönn 2019. Hvort námskeið um sig er 4 klukkutímar.Námskeiðin eru kennd hjá IÐUNNI í Vatnagörðum 20 en einnig býðst fyrirtækjum að fá þau á sínar starfsstöðvar.Nánari upplýsingar um námskeiðin og dagsetningar námskeiða er að finna á heimasíðu IÐUNNAR.