Til hamingju með daginn!Á þessum degi fyrir 44 árum lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Samstaða kvenna skilaði mikilvægum breytingum í átt að jafnrétti. En þrátt fyrir að samfélagið hafi breyst verulega á nærri hálfri öld er enn stór hópur kvenna sem býr við launakjör sem duga engan veginn til framfærslu, óásættanlegt starfsumhverfi, vanvirðingu á framlagi þeirra og of langa vinnuviku.Í dag viljum við beina kastljósinu að stöðu þeirra kvenna sem veita þjónustu eða annast aðra einstaklinga í vinnunni og heima. Þær sinna mikilvægum störfum sem snerta okkur öll, börnin okkar, foreldra, ættingja og vini. Konur sem samfélagið gæti ekki verið án og störf sem myndu setja samfélagið á hliðina ef þær legðu niður störf. Þetta eru til dæmis lægst launuðu störfin í okkar samfélagi, konur sem vinna við umönnun barna í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheimilum.Álag er almennt meira og vinnuskilyrði verri á vinnustöðum þar sem konur eru í meirihluta. Þar fyrir utan treystir um þriðjungur kvenna á vinnumarkaði sér ekki til að vera í fullu starfi, einkum vegna ábyrgðar á umönnun barna og fjölskyldumeðlima eða vegna þess að störfin eru svo erfið. Í samanburði við önnur Evrópulönd eru aðstandendur á Íslandi undir mestu álagi allra vegna umönnunar óvinnufærra ættingja, öryrkja eða aldraðra.Það skyldi því engan undra að konur 50 ára og eldri eru stærsti hópurinn þegar fjölgun örorkulífeyrisþega er skoðuð. Það skilar samfélagi þar sem konur lifa að meðaltali 66 heilbrigð ár en meðalævilengdin er 84 ár. Karlar fá að jafnaði 71,5 heilbrigð ár en lifa að meðaltali 81 ár. Konur og karlar stóðu nærri jafnfætis hvað heilbrigði varðar fyrir efnahagshrunið en í kjölfar þess byrjaði að halla undan fæti. Tvímælalaust hafa niðurskurðaraðgerðir í velferðarkerfinu aukið álag bæði í vinnunni og heima. Lágu launin hafa ekki eingöngu áhrif á konur þegar þær eru á vinnumarkaði heldur út ævina enda réttindi þeirra í lífeyrissjóðum lægri.Nærri hálfri öld eftir fyrsta kvennaverkfallið er framlag kvenna til samfélagsins ekki að fullu metið að verðleikum. Kynskiptur vinnumarkaður er enn helsta ástæða kynbundins launamunar á Íslandi en þar hefur skakkt verðmætamat á vinnuframlagi kvenna mestu áhrifin. Skipulag vinnumarkaðar og samfélagsins skilar neikvæðum áhrifum á fjárhag, heilsu og líðan kvenna. Þvert á það sem margir telja þá kemur jafnrétti ekki af sjálfu sér heldur þarf að berjast fyrir því.Það er kominn tími til að stjórnvöld og atvinnurekendur grípi til aðgerða til að stuðla að raunverulegu jafnrétti. T.d. með því að létta umönnunarbyrði kvenna vegna barna og ættingja og með því að beina stuðningi þangað sem hans er mest þörf. Útrýma þarf fátækt með því að hækka lægstu laun verulega og gera þá kröfu að konur geti lifað af grunnlaunum sínum. Við verðum að tryggja starfsumhverfi sem eyðileggur konur ekki fyrir aldur fram og stytta vinnuvikuna hjá öllu launafólki. Þannig byggjum við réttlátara og betra samfélag!Drífa Snædal, forseti ASÍSonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.