Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn sína til að ganga ekki störf félagsmanna Eflingar, komi til verkfalla þeirra hjá Reykjavíkurborg. Fyrsta vinnustöðvun hefst næstkomandi þriðjudag. Í yfirlýsingu á vef Kennarasambandsins segir að það sé réttur vinnandi stétta að hafa sjálfstæðan samningsrétt.VR hefur einnig lýst yfir stuðningi við baráttu Eflingar. Í stuðningsyfirlýsingu félagsins kemur meðal annars fram: „Lykilatriðið í kröfum Eflingar er leiðrétting á kjörum lægst launuðu starfsmanna borgarinnar sem nú eru á launum sem duga ekki til framfærslu. Að geta lifað með mannlegri reisn af launum sínum hlýtur að vera eitt grundvallar mannréttinda- og baráttumál verkalýðshreyfingarinnar.“Efling stéttarfélag þakkar stuðninginn sem berst nú viða að við baráttuna fyrir bættum kjörum þeirra lægst launuðu.