Samningaviðræður Eflingar við borgina hafa enn engan árangur borið. Efling býður félagsfólki sem vinnur hjá Reykjavíkurborg til fundar þar sem afstaða samninganefndar verður útskýrð og félagsmönnum gefinn kostur á að ræða saman og við samninganefnd.
- Gamla bíó – Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík – þriðjudaginn 3. mars kl. 13.00-15.00
Ávarp
– Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, flytur ávarp.
Rétturinn til virðingar – rétturinn til baráttu
– Drífa Snædal, forseti ASÍ, fjallar fjallar um mikilvægi verkfallsvopnsins í baráttu fyrir betri kjörum.
Hvar stöndum við nú?
– Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, fjallar um stöðuna í samningaviðræðum Eflingar og Reykjavíkurborg og næstu skref.
Umræður
– Fundargestum gefinn kostur á að afla upplýsinga og varpa fram spurningum til samninganefndar Eflingar, formanns og framkvæmdastjóra.