Félagar í Eflingu, foreldrar og aðrir stuðningsmenn, eru hvattir til að sýna láglaunafólki hjá borginni stuðning með því að mæta á baráttu- og stuðningsfund í Iðnó miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13.Fjölmennum. Í samstöðinni felst okkar mesti styrkur.Allir velkomnir!Dagskrá
- Kvennakórinn Katla
- Tatjana Latinovic, formaður Kvennréttindafélags Íslands (KRFÍ), fjallar um hlutskipti kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði
- Theodór Ingi Ólafsson, foreldri í fæðingarorlofi og faðir tveggja leikskólabarna, talar um gildi starfa ófaglærða á leikskólum
- Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, fjallar um mikilvægi umönnunarstarfa á hjúkrunarheimilum og í heimaþjónustu
- Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar heldur barátturæðu
Að fundi loknum verður gengið út í ráðhús þar sem við látum í okkur heyra.Fundarstjóri er Katrín Oddsdóttir