Ábendingar borist um bótasvik fyrirtækja

30. 03, 2020

Eflingu hafa borist ábendingar um að starfsfólk sem fyrirtæki hefur sett á hlutabætur sé enn látið vinna fullt starf. Fyrirtæki hafa þannig fært launakostnað yfir á ríkið en þiggja vinnu starfsfólksins.Um er að ræða grófa misnotkun á almannafé sem gengur þvert á markmið hlutabótaleiðarinnar.Hlutabætur eru aðgerð yfirvalda vegna yfirstandandi farsóttar. Fyrirtæki sem draga saman seglin á næstu vikum geta þannig haldið ráðningarsambandi við starfsfólk sem ekki hefur verkefni, með því að fá greiddar bætur úr atvinnutryggingarsjóði. Aðgerðin er ekki hugsuð sem niðurgreiðsla á launakostnaði við starfsmenn sem hafa verkefni og færa fyrirtækinu þannig arð.„Sumir atvinnurekendur ætla greinilega að notfæra sér þann harmleik sem þessi faraldur er til að ríkisvæða kostnaðinn en halda tekjunum,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. „Þetta er geysilega ósvífið gagnvart atvinnuleysistryggingarsjóði, og kaldranaleg eigingirni á hættutímum.“„Oft hefur spjótum verið beint að fátæku fólki sem sakað er um að svindla á bótakerfum. Nú sjáum við dæmi um að vellauðug fyrirtæki, sem hafa greitt sér milljónir og milljarða í arð, eru að nýta sér neyðarúrræði ríkisins. Stjórnvöld þurfa að koma í veg fyrir svik þegar í stað,“ sagði Sólveig.Efling mun halda utan um öll staðfest tilvik um bótasvik fyrirtækja og tilkynna á viðeigandi staði. Ef þú hefur ábendingu um svik af þessu tagi geturðu sent hana á efling@efling.is.