Dagsferðir Eflingar í Borgarfjörð 29. ágúst og 5. september 2020

Erum byrjuð að bóka í dagsferðir. Félagsmenn geta bókað einn gest með sér.Hin árlega dagsferð Eflingar verður í lok sumars og að þessu sinni farið í Borgarfjörð. Hægt er að velja um tvær ferðadagsetningar, laugardaginn 29. ágúst eða laugardaginn 5. september. Verð er 6.000 kr. á mann. Frítt er fyrir börn undir 14 ára aldri.Lagt verður af stað stundvíslega kl. 8:15 frá húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1. Mæting kl. 8:00.

  • Ekið sem leið liggur að Þingvöllum og þaðan inn á veginn yfir Uxarhryggi sem er fáfarinn en falleg leið í Borgarfjörð. Meðal viðkomustaða í ferðinni verða Reykholt, Hraunfossar, Húsafell þar sem snætt verður nesti, geitabúið á Háafelli, Deildartunguhver og Hvanneyri. Ferðinni lýkur svo á Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem boðið verður upp á léttan kvöldverð og gestum gefst einnig kostur á að skoða Egilssögu- eða Landnámssýningu.
  • Þetta er einstakt tækifæri til að fara í skemmtilegt dagsferðalag, njóta útsýnis og fallegrar náttúru á sögufrægum slóðum með leiðsögn.
  • Áætluð heimkoma er undir kvöld. Hafa þarf í huga ef börn eru með að ferðin tekur u.þ.b. 12 klst.

Ferðalangar þurfa að hafa með sér nesti til dagsins, skjólgóðan fatnað og góða skó.Skráning í ferðina er í síma 510-7500 eða með tölvupósti – orlof@efling.is, senda þarf upplýsingar um nafn og kennitölu. Athugið að skráning mun standa yfir eins lengi og sætaframboð leyfir og gesti þarf einnig að skrá sérstaklega.Sjá nánari upplýsingar hér.