Efling stéttarfélag leitar að kjaramálafulltrúa á skrifstofu félagsins í Reykjavík og þjónustufulltrúa á skrifstofu félagsins í Hveragerði.KjaramálafulltrúiHelstu verkefni:
- Samskipti við félagsmenn og atvinnurekendur
 - Samstarf við lögmenn félagsins um innheimtu krafna
 - Bréfaskriftir og útreikningar á kröfum
 
Hæfniskröfur:
- Reynsla og þekking á vinnumarkaðsmálum og kjarasamningum kostur
 - Rík samskiptahæfni og þjónustulund
 - Góð tök á íslensku og ensku. Pólska eða litháíska kostur
 - Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun Excel og Word
 - Skipulags- og greiningarhæfni
 
Þjónustufulltrúi í Hveragerði Helstu verkefni:
- Símsvörun
 - Móttaka og afgreiðsla félagsmanna
 - Almenn skrifstofustörf
 
Hæfniskröfur:
- Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
 - Góð tölvukunnátta (office 365)
 - Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
 - Góð tök á íslensku og ensku
 - Pólskukunnátta kostur
 
Um er að ræða 75-100% starf.Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.Nánari upplýsingar um bæði störf veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.isUmsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á www.hagvangur.is