Móttaka lokuð – Sími og tölvupóstur kemur í staðinn

Vegna hertra sóttvarnaraðgerða verður móttaka skrifstofu Eflingar-stéttarfélags í Guðrúnartúni 1 lokuð frá og með mánudeginum 5. október 2020. Veitt verður besta mögulega þjónusta í gegnum síma og tölvupóst og eru félagsmenn hvattir til að notfæra sér þær samskiptaleiðir. Ekki verður hægt að taka á móti félagsmönnum í húsnæðinu og ekki verður hægt að skila gögnum nema í gegnum tölvupóst.Eina undantekninging frá þessu eru viðtöl við VIRK fulltrúa en reynt verður til hins ítrasta að bjóða þau áfram með óbreyttum hætti.