Einkareknir skólar áforma félagsleg undirboð

Kjaraviðræður Eflingar við Samtök sjálfstætt starfandi skóla (SSSK) hafa leitt í ljóst að einkareknir skólar á höfuðborgarsvæðinu, sem starfa fyrir almannafé, hyggja á víðtæk félagsleg undirboð gagnvart starfsfólki sínu.Á samningafundi í fyrradag, 7. október, kröfðust SSSK kjaraskerðinga í mörgum liðum, þar á meðal að afnema núverandi uppsagnarvernd, skerða réttindi í fæðingarorlofi og stytta veikindarétt, í sumum tilfellum 25-falt.Kjör umræddra starfsmanna hafa í næstum 20 ár tekið mið af starfskjörum starfsfólks Reykjavíkurborgar í sömu störfum. Yrði fallist á kröfur SSSK yrðu kjörin mun verri en borgarstarfsmanna. Yfirgnæfandi meirihluti starfsfólksins sem um ræðir eru konur á lægstu launatöxtum.Formaður SSSK fullyrti í viðtali við Mbl.is þann 7.10.2020 að engar kjaraskerðingar væru í tillögunum. Þar er um óþolandi rangfærslur að ræða sem Efling sér sig knúna til að leiðrétta. Í minnisblaði er farið yfir viðbrögð samninganefndar Eflingar á samningafundi í gær 8.10.2020.Af 22 skólum sem í hlut eiga starfa 20 samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg þar sem ríkar kröfur eru gerðar til starfseminnar. Greidd eru framlög til skólanna úr sjóðum Reykjavíkurborgar sem miðast við rekstrarkostnað leikskóla borgarinnar, en einkareknir skólar hafa heimild til að afla sér viðbótartekna með gjaldtöku.Viðræður Eflingar og SSSK hafa staðið í meira en hálft ár, eða allt frá því samdist við Reykjavíkurborg þann 10. mars 2020. Efling vísaði deilunni til ríkissáttasemjara í maí. Nálægt 300 félagsmenn Eflingar starfa hjá aðildarfyrirtækjum SSSK.„Borgin hefur undirritað sögulegan kjarasamning við Eflingu þar sem mikilvægi hefðbundinna kvennastarfa var viðurkennt. Nú ætla einkareknir leikskólar, sem eru á framfæri borgarinnar, að ráðast á kjör sömu kvenna með félagslegum undirboðum. Þeir ætla meðal annars að afnema réttindi þeirra í fæðingarorlofi. Ég hef orðið vitni að ýmsu í kjaraviðræðum með félagsmönnum Eflingar en þetta er með því ótrúlegra. Ég velti því fyrir mér hvort Reykjavíkurborg ætli að taka þátt í þessari aðför,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.Efling mun boða til upplýsinga- og samráðsfundar með félagsmönnum sem starfa hjá SSSK strax eftir helgi þar sem næstu skref verða ákveðin.