Ábyrgðarsjóður launa hefur með nýjum ákvörðunum, 2. og 3. mars, fallist á að gangast í ábyrgð fyrir vangreiddar launagreiðslur til fjögurra félagsmanna Eflingar sem störfuðu hjá fyrirtækinu Eldum rétt. Félagsmennirnir nutu stuðnings Eflingar og lögmannsstofunnar Réttar við stefnu á hendur Eldum rétt og starfsmannaleigunni Menn í vinnu til greiðslu umræddra launa, en laununum hafði verið haldið eftir á þeim forsendum um að væri að ræða kostnað við húsnæði, líkamsræktarkort og fleira.Með ákvörðun sinni viðurkennir Ábyrgðarsjóður launa að um ólögmætan launafrádrátt hafi verið að ræða, en um það snerist dómsmál félagsmannanna að stórum hluta. Um þetta segir Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður þeirra: „Ágreiningur dómsmálsins laut einkum að því hvort Mönnum í vinnu hefði verið heimilt að draga að eigin ákvörðun ýmsa kostnaðarliði frá launum starfsmannanna og lýsa því þannig yfir að launin væru greidd með skuldajöfnun.“Þar sem skaði félagsmannanna hefur að þessu leyti verið bættur er grundvöllur dómsmálsins breyttur. Mun Efling því ekki styðja framhald dómsmála á hendur Eldum rétt og Mönnum í vinnu. Verður frávísun máls í héraðsdómi þann 24. febrúar síðastliðinn því ekki kærð með stuðningi Eflingar líkt og áður var tilkynnt.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir það óvænta vendingu í málinu að Ábyrgðarsjóður launa hafi viðurkennt og gengist í ábyrgð fyrir þessum kröfum. „Það er sannarlega ánægjulegt að Ábyrðarsjóður launa hafi á síðustu stundu stigið inn og viðurkennt réttmæti þeirra krafna sem launagreiðendur kusu að slást um við láglaunafólk fyrir dómi. Þannig er félagsmönnum okkar bættur skaði og því eru að okkar mati ekki sömu forsendur fyrir dómsmáli. Hins vegar er það miður að þessi kostnaður lendi á skattgreiðendum og vil ég skora á Eldum rétt að axla ábyrgð og endurgreiða Ábyrgðarsjóði þessar fjárhæðir,“ sagði Sólveig Anna.Um ræðir upphæðir á bilinu 120-195 þúsund í tilfelli hvers þeirra fjögurra félagsmanna sem í hlut áttu. Hafa greiðslurnar verið lagðar inn á reikninga þeirra.Efling og Réttur studdu 20 félagsmenn til að leggja fram kærur til Héraðssaksóknara í ágúst 2019 og apríl 2020 vegna grunaðra brota af hálfu Manna í vinnu. Rannsókn er yfirstandandi hjá Héraðssaksóknara vegna þessara mála.Um niðurstöðu þessa máls segir Ragnar Aðalsteinsson enn frekar: „Verkalýðshreyfingin hefur lengi barist gegn einhliða frádrætti af verkalaunum og voru um það sett lög í byrjun síðustu aldar. Með þeirri ákvörðun Ábyrgðasjóðs launa að fallast á að greiða laun starfsmannanna án frádráttar stígur sjóðurinn mikilvægt skref í þá átt að vernda verkalaun starfsmanna gegn einhliða skuldajöfnuði atvinnurekandans.“