Stjórn Eflingar stéttarfélags óskaði eftir lögfræðilegri úttekt, hjá lögfræðistofu sem áður hefur sinnt lögfræðistörfum fyrir félagið, á viðskiptum félagsins við Sigur vefstofu ehf. á árunum 2018 til 2021. Niðurstaða úttektarinnar liggur nú fyrir.
Helstu niðurstöður eru að ákvarðanir um samningssamband félagsins við Sigur vefstofu ehf., umfang þess og kostnað voru ekki bornar undir stjórn félagsins með réttum hætti. Með því hafi fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins farið gegn starfsskyldum sínum og heimildum með alvarlegum hætti. Stjórn ber ábyrgð á rekstri og fjárhag félagsins samkvæmt lögum. Fram kemur gagnrýni á að stjórn hafi ekki sinnt eftirlitshlutverki sínu nægjanlega vel, með því að kalla eftir gögnum og upplýsingum, þrátt fyrir að tilefni til þess hafi nokkrum sinnum komið upp.
Stjórn Eflingar telur að draga megi mikilvægan lærdóm af málinu sem kalli á að komið verði á mun skýrara verklagi og reglum um verkaskiptingu stjórnar og framkvæmdastjóra og hvernig heimildir framkvæmdastjóra og annarra stjórnenda á skrifstofu félagsins séu afmarkaðar. Að tryggt sé með vandaðari hætti að fjármunum félagsmanna sé varið í samræmi við vilja stjórnar sem er kjörin af félagsmönnum til að bera ábyrgð á starfsemi félagsins.