Opnunartími skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1 verður styttri miðvikudaginn 15. febrúar vegna verkfallsskráninga.
Opið verður til 13:00 þann dag og símtölum verður sömuleiðis ekki svarað eftir þann tíma. Hægt verður þó að senda tölvupóst á efling@efling.is og brugðist verður við þeim póstum eins fljótt og auðið er.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.