![](https://efling.is/wp-content/uploads/2023/11/ytju-1024x707.jpg)
Árlegt jólaball Eflingar verður haldið laugardaginn 16. desember í Gullhömrum í Grafarholti kl. 15.00.
Jólasveinar mæta á svæðið, hljómsveit hússins sér um dans og söng í kringum jólatréð og boðið verður upp á veitingar og sætindi.
Miðasala fyrir jólaballið byrjar 21. nóvember og stendur til 5. desember. Miðinn verður á 500 kr stykkið og hægt verður að kaupa miða á skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1. Hver félagsmaður getur keypt allt að 5 miða. Einungis verður tekið við kortagreiðslum.