Stjórn Eflingar stéttarfélags hvetur alla til að mæta í samstöðugöngu með palestínsku þjóðinni sunnudaginn 10. desember, á alþjóðadegi mannréttinda. Félagið Ísland – Palestína stendur fyrir göngunni sem hefst hjá Utanríkisráðuneytinu við Rauðarárstíg kl 13:00. Gengið verður niður Laugaveg og komið verður saman á útifundi á Austurvelli.
Hér fyrir neðan má sjá ályktun stjórnar Eflingar frá 9. 11. 2023 þar sem stjórn Eflingar fordæmir þjóðernishreinsanir Ísraels.
Stjórn Eflingar fordæmir þjóðernishreinsanir ísraelska ríkisins á Gaza.
Ísland getur ekki setið hjá á meðan ísraelska ríkið stundar þjóðernishreinsanir í Palestínu. Þau skelfilegu morð sem að nú eru framin á almennum borgurum, börnum, konum og mönnum eru glæpur gegn mannkyni. Ísraelski herinn eirir engu: spítalar, skólar og flóttamannabúðir eru sprengdar í loft upp. Læknar, blaðamenn og starfsfólk alþjóðlegra stofnana er myrt í hundraða tali. Við berum öll ábyrgð á því að stöðva slík grimmdarverk og brot á alþjóðalögum. Við berum öll ábyrgð á því að stöðva þá glæpi gegn mannkyni sem nú eru framdir á saklausu fólki á Gaza.
Stjórn Eflingar fordæmir þjóðernishreinsanir ísraelsku ríkisstjórnarinnar gegn palestínsku þjóðinni. Stjórn Eflingar krefst þess að íslensk stjórnvöld tali skýrt fyrir vopnahléi á Gaza. Stjórn Eflingar krefst fullra mannréttinda og jafnréttis frammi fyrir lögunum fyrir fólk af öllum uppruna í Palestínu og Ísrael, endaloka á ólöglegu hernámi á Vesturbakkanum og Gaza og viðurkenningar á rétti flóttafólks til að snúa aftur til heimkynna sinna.
Stjórn Eflingar hefur samþykkt að styrkja Félagið Ísland Palestína um 500.000 krónur. Stjórn Eflingar skorar á stjórnir annarra verkalýðsfélaga að gera slíkt hið sama.