Kjarasamningur Eflingar við Reykjavíkurborg undirritaður

20. 06, 2024
Við undirritun samningsins í dag.

Samninganefnd Eflingar stéttarfélags hefur náð samkomulagi við viðsemjendur sína hjá Reykjavíkurborg. Kjarasamningur var undirritaður um miðjan dag í dag, 20. júní, á sumarsólstöðum.

Að sögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, er samninganefnd félagsins ánægð með niðurstöðuna. Góður árangur hafi náðst við samningaborðið og mun nýr kjarasamningur færa Eflingarfélögum sem vinna hjá Reykjavíkurborg mikilvægar kjarabætur á næstu árum. 

Kjarasamningurinn við borgina inniheldur sambærilegar launahækkanir og kjarasamningar Eflingar á almenna markaðnum, sem undirritaðir voru í mars síðastliðnum. Mjög góður árangur náðist í fjölgun undirbúningstíma hjá deildarstjórum sem starfa á leikskólum borgarinnar og þá náðist einnig árangur í að bæta og skýra grein sem fjallar um undirbúningstíma annarra starfsmanna leikskólanna. Góður árangur náðist einnig í ýmsum mikilvægum úrbótamálum sem samninganefnd Eflingar hafði sett á oddinn í viðræðunum. 

Samningaviðræður Eflingar við Reykjavíkurborg höfðu staðið yfir síðan um miðjan apríl, án þess að þokast verulega áfram. Samninganefnd Eflingar vísaði því kjaradeilunni til ríkissáttasemjara 27. maí síðastliðinn og eftir það komst nokkur skriður á viðræðurnar, sem nú hefur skilað góðri niðurstöðu. Kjarasamningur Eflingar við borgina rann út 31. mars síðastliðinn. 

Hafist verður handa við að kynna hinn nýja kjarasamning á allra næstu dögum og atkvæðagreiðsla um samninginn hefst innan skamms. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eiga að liggja fyrir ekki síðar en 10. júlí. Frekari upplýsingar um efni samningsins og atkvæðagreiðlsu verða birtar á efling.is fljótlega.

„Samninganefnd Eflingar er ánægð og stolt af góðum árangri í viðræðum okkar við Reykjavíkurborg. Við settum okkur markmið vegna mikilvægra úrbótamála og við náðum árangri í þeim velflestum. Félagsfólk Eflingar sem að starfar hjá Reykjavíkurborg er ómissandi starfsfólk. Það er ánægjulegt að sjá og upplifa að Reykjavíkurborg skilur að hlusta þarf á kröfur okkar og mætir okkur með samningsvilja í kjarasamningsviðræðum“ segir Sólveig Anna.

Samninganefnd Eflingar glaðbeitt eftir undirritun samningsins.