Efling vísar kjaradeilu við SFV til ríkissáttasemjara

27. 08, 2024

Efling stéttarfélag vísaði í dag, 27. ágúst, kjaradeilu við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) til ríkissáttasemjara. Efling hefur frá því um mitt sumar átt fimm samningafundi við SFV en án þess að nokkuð hafi þokast áfram í deilunni. Því sá samninganefnd Eflingar ekki annan kost í stöðunni á fundi sínum í gær heldur en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.

Efling fer fram á að þeirri launastefnu sem samið var um við Samtök atvinnulífsins í mars síðastliðnum verði fylgt og að um verði að ræða sömu hækkanir og samið verður um við ríkið. Meginkrafa Eflingar í viðræðunum snýr hins vegar að því að finna lausn á undirmönnun og ofurálagi á hjúkrunarheimilum. Samninganefnd Eflingar er reiðubúin að fallast á langtímakjarasamninga verði tekið á þeim vanda með tímasettum, raunhæfum aðgerðum á samningstímanum. 

Sívaxandi mönnunarvandi á hjúkrunarheimilum hefur leitt til ósjálfbærs ástands. Í kröfugerð Eflingar er bent á að sökum þess hafi álag og streita starfsfólks aukist í sífellu, sem aftur leiðir til hættu á auknum veikindum til skemmri eða lengri tíma og kulnun í starfi. Starfsfólk í umönnun er þá í æ meira mæli látið sinna verkefnum sem heilbrigðismenntað starfsfólk ætti með réttu að sinna en einnig verkefnum sem ekki eru umönnun heldur þvottum og hreingerningum, svo eitthvað sé nefnt. Af þessum sökum öllu gefst starfsfólk sífellt minni tími til gefandi samskipta við heimilisfólk, sem leiðir til skertra lífsgæða þess og slakari þjónustu. 

Í þessu ljósi kallar Efling eftir því að viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum verði rýnd og endurskoðuð, og ráðstafanir gerðar til að tryggja ásættanlega mönnun. Einnig að skilgreint verði með skýrari hætti hvaða verkefni fallir undir verksvið starfsfólks í umönnun, auk annarra krafna.

„Samninganefnd Eflingar er mönnuð fólki sem starfar á hjúkrunarheimilum höfuðborgarsvæðisins. Þau hafa unnið mikla undirbúningsvinnu og útbúið hnitmiðaða kröfugerð sem snýst um helstu vandamálin sem að þau takast á við á sínum vinnustöðum. Kröfurnar snúast fyrst og fremst um að finna lausn á þeirri undirmönnun og því ofurálagi sem að ríkja allt of víða á hjúkrunarheimilunum. Því miður hefur samtalinu við SFV lítið sem ekkert miðað áfram, þrátt fyrir að við höfum mætt lausnamiðuð til leiks og tilbúin til að ná samningum hratt og örugglega. Þessvegna tók samninganefnd Eflingar í gær ákvörðun um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.