Icelandair gjafabréfin uppseld

Icelandair gjafabréfin sem hafa verið í boði fyrir félagsfólk á Mínum síðum Eflingar eru uppseld eins og stendur.

Gjafabréfin hafa verið félagsfólki Eflingar stéttarfélags til boða á sérstöku tilboðsverði. Óvíst er hvenær gjafabréfin koma aftur í sölu en samningaviðræður standa yfir milli Eflingar og Icelandair um verðlagningu gjafabréfanna.

Þangað til samkomulag liggur fyrir verða gjafabréfin ekki í sölu. Tilkynnt verður á vef Eflingar um leið og samningar nást um verð.