Nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk Konukots undirritaður

25. 09, 2024

Samninganefnd Eflingar stéttarfélags undirritaði í dag nýjan kjarasamning við Rótina, vegna starfsfólks í Konukoti. Samningurinn, verði hann samþykktur af félagsfólki Eflingar sem hann gildir um, gildir afturvirkt frá 1. apríl síðastliðnum og til 31. mars 2028.

Umræddur samningur er hliðstæður þeim kjarasamningi sem Efling hefur þegar samþykkt gagnvart Reykjavíkurborg. 

Atkvæðagreiðsla er hafin og má nálgast beinan hlekk á atkvæðagreiðsluna hér. Notast þarf við rafræna auðkenningu til að greiða atkvæði. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 2. október 2024.

Nýi kjarasamningurinn er hér að neðan. Eflingarfélagar sem starfa í Konukoti eru hvattir til að kynna sér hann og taka þátt í atkvæðagreiðslunni.