Desemberuppbót fyrir hvert almanaksár miðast við 45 unnar vikur. Desemberuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á desemberuppbótina. Uppbótin er greidd miðað við starfshlutfall og starfstíma. Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.
Desemberuppbót Eflingarfélaga eftir mismunandi geirum:
Desemberuppbót á almenna markaði samkvæmt samningi Eflingar og SA
Desemberuppbót árið 2024: 106.000 kr
Fullt starf telst 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Þeir sem eru í starfi fyrstu viku í desember eða hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eiga rétt á uppbót eigi síðar en 15. desember. Fullt ársstarf m.v. 45 vikur eða 1800 klst. á tímabilinu 1. janúar – 30. nóvember.
Dæmi um útreikninga:
Dæmi 1: Starfsmaður byrjar í nýju starfi 1. september og hyggst starfa til áramóta. Tímabilið frá 1. sept. til 31. des samsvara 17 vikum. Hlutfall uppbótar hans er 37,8% (17 vikur / 45 vikur). Desemberuppbót hans er því
106.000 kr x 0,378 = 40.068 kr
Dæmi 2:
Starfsmaður hefur unnið í 30 vikur í 70% starfi.
106.000/45 x 30 x 70% = 49.467 kr.
Dæmi 3: Starfsmaður hefur unnið 800 stundir óreglulega í 30 vikur. Ef starfsmaður hefur unnið mjög óreglulega er oft betra að miða við klukkustundir. 45 vikur í fullu starfi gera 45*40=1.800 tímar.
106.000/1.800 x 800 klst = 47.111 kr.
Desemberuppbót hjá Reykjavíkurborg
Desemberuppbót árið 2024: 119.000 kr
Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað í 13 vikur samfellt á árinu skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Ávinnslutímabilið er fyrstu 10 mánuðir ársins.
Dæmi um útreikninga:
Dæmi 1: Starfsmaður vinnur frá 1. janúar til 1. október 2023 sem samsvarar fullu starfi í 39 vikur. Þar af tók hann sumarleyfi í 4 vikur. Hann fær því 77,8% af fullri uppbót (35 vikur / 45 vikur) eða kr. 119.000 x 0,778 = 92.582 kr.
Dæmi 2: Starfsmaður hefur verið í 70% starfi í frá 1. mars eða í 8 mánuði af fyrstu 10 á árinu.
119.000/10 x 8 x 70% = 66.640 kr
Desemberuppbót hjá Ríki og hjúkrunarheimilum
Desemberuppbót árið 2024: 106.000 kr
Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað í 13 vikur samfellt á árinu skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Ávinnslutímabilið er fyrstu 10 mánuðir ársins.
Dæmi um útreikning:
Starfsmaður hefur verið í 70% starfi í frá 1. mars eða í 8 mánuði af fyrstu 10 á árinu.
106.000/10 x 8 x 70% = 59.360 kr
Desemberuppbót hjá sveitafélögum öðrum en Reykjavíkurborg
Desemberuppbót árið 2024: 135.500 kr
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Ávinnslutímabilið er frá 1. desember árið á undan.
Dæmi um útreikning:
Starfsmaður hefur verið í 70% starfi í frá 1. mars eða í 9 mánuði.
135.500/12 x 9 x 70% = 70.875 kr