Efling fagnar góðum árangri í kjaraviðræðum við hjúkrunarheimilin

Samninganefnd Eflingar undirritaði í nótt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), sem tekur til á þriðja þúsund Eflingarfélaga á hjúkrunarheimilum og sambærilegum stofnunum á Höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 og nær því yfir 4 ára samningstíma, þar af 6 mánuði afturvirka frá undirritun.

Meginkrafa samninganefndar Eflingar í viðræðum við SFV var að tekið yrði á mönnunarvanda hjúkrunarheimila. Þessi vandi er rækilega staðfestur í tölulegum gögnum, til að mynda í skýrslu starfshóps undir forystu Gylfa Magnússonar sem út kom árið 2021. Jafnframt endurspegla frásagnir Eflingarfélaga af óboðlegri fáliðun og streitu á hjúkrunarheimilum þennan veruleika.

Eflingar fagnar því innilega að nýundirrituðum samningi fylgir samkomulag við stjórnvöld sem tekur á mönnunarvandanum. Samkvæmt þessu samkomulagi skulu fjármagnaðar og tímasettar lausnir á manneklu hjúkrunarheimilanna liggja fyrir af hálfu heilbrigðis- og fjármálaráðuneytanna eigi síðar en 1. apríl 2025. Takist það ekki er Eflingu heimilt að segja upp samningnum með eins mánaðar fyrirvara þann 1. maí 2025.

Það er mikið gleðiefni að tekist hafi að fá stjórnvöld að borðinu til að taka á þessum vanda, sem augljóslega varðar ekki aðeins Eflingarfélaga heldur er gríðarstórt hagsmunamál íbúa, aðstandenda og fagfólks á íslenskum hjúkrunarheimilum.

Þetta er í fyrsta skipti sem Efling gerir sjálfstæðan kjarasamning fyrir hönd starfsfólks á hjúkrunarheimilum, en kjarasamningar þessa hóps hafa á síðustu áratugum ávalt fylgt sjálfkrafa samningi Eflingar við ríkið. Í samræmi við aðferðafræði Eflingar á síðustu árum leiddi virk samninganefnd Eflingarfélaga viðræðurnar frá upphafi til enda.

Önnur atriði úr kröfugerð Eflingarfélaga náðust í gegn, þessi helst:

  • Nýtt starfsheiti, hópstjóri, kemur inn í samning og fylgja því 3 launaþrep. Með starfsheitinu er komið til móts við vaxandi ábyrgð Eflingarfélaga á krefjandi og sérhæfðum störfum á hjúkrunarheimilum, til að mynda lyfjagjöf.
  • Inn kemur ákvæði sem tryggir starfsfólki vistlega aðstöðu til neysluhléa.
  • Ekki er lengur krafist skila á veikindavottorðum vegna styttri veikinda fyrir starfsmenn sem sjaldan eru veikir samkvæmt Bradford-kvarða.
  • Starfsmönnum í 80% eða meira starfshlutfalli er tryggður forgangur á 8. klst. vaktir.
  • Heimildir til kosningar trúnaðarmanna eru auknar verulega, úr hámarki 2 í 5 trúnaðarmenn á vinnustað, eftir stærð vinnustaðar.
  • Launasetning starfsfólks sem sinnir heimaþjónustu á vegum hjúkrunarheimilanna er lagfærð með tilliti til launasetningar sama hóps hjá sveitarfélögum.

Varðandi launalið fylgir samningurinn þeirri launastefnu sem Efling ásamt félögum í Breiðfylkingunni mótaði á almennum vinnumarkaði.

„Við í samninganefnd erum gríðarlega stolt af þeim árangri sem náðist í þessum kjaraviðræðum. Við erum enn fremur mjög stolt af því að hafa í fyrsta skipti skipulagt kjaraviðræður þessa hóps með okkar opnu og lýðræðislegu aðferðum. Í enn eitt skiptið sjáum við að það er leiðin til árangurs í kjarabaráttu verkafólks,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – stéttarfélags.

Atkvæðagreiðslu um samninginn skal lokið 16. október og hefst nú vinna við kynningu á samningnum fyrir félagsfólki.