Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT

11. 12, 2024

Fimmtungur allra þeirra fyrirtækja sem Efling stéttarfélag sendi bréf vegna svokallaðs kjarasamnings SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, við gervistéttarfélagið Virðingu hefur sagt sig úr samtökunum. Þá hafa enn fleiri fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sendi bréf til aðildarfyrirtækja SVEIT fyrir hádegi í gær þar sem tíundaðar voru þær aðgerðir sem Efling hyggst ráðast í gegn SVEIT og einstökum aðildarfyrirtækjum, vegna hins ólögmæta kjarasamnings við Virðingu. Þegar hafa borist viðbrögð frá tugum fyrirtækja. 

Af þeim 108 fyrirtækjum sem fengu téð bréf sent hafa 22 fyrirtæki nú þegar lýst því að þau hafi gengið úr SVEIT eða hafi óskað eftir úrsögn. Það er fimmtungur þeirra fyrirækja sem Efling sendi bréfið á. Þá hafa alls 33 fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningi Eflingar, eða tæpur þriðjungur. Einnig hafa félaginu borist staðfestingar á hinu sama frá fyrirtækjum sem ekki fengu umrætt bréf. 

Efling mun staðfesta móttöku allra þessara erinda.

„Ég er mjög ánægð með þau viðbrögð sem mér hafa borist frá forsvarsmönnum veitingahúsa. Langflestir hafa lýst yfir fullum vilja til að fylgja löglegum kjarasamningum og virða réttindi síns starfsfólks. Það er jafnframt ánægjulegt að sjá fyrirtækin segja sig úr SVEIT, en í því felst skýr afstaða gegn þeim ömurlega blekkingarleik sem SVEIT hafa sett á svið í gegnum gervistéttarfélagið Virðingu,“ segir Sólveig Anna.