Flugþjónar hvetja fólk til að halda sig fjarri gervistéttarfélaginu Virðingu

Flugfreyjufélag Íslands hefur sent Eflingu stéttarfélagi stuðningsyfirlýsingu vegna aðgerða Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu. Hvetur Flugfreyjufélagið starfsfólk í veitingageiranum til að halda sig fjarri frá Virðingu „og að taka ekki þátt í starfsemi sem miðar að því einu að skerða kjör og grafa undan réttindum sem áunnist hafa með áratuga baráttu,“ segir í yfirlýsingunni. 

Stuðningsyfirlýsing Flugfreyjufélags Íslands vegna aðgerða gegn „stéttarfélaginu“ Virðingu. 

Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir fullum stuðningi við málflutning Eflingar – stéttarfélags, SGS og Einingar/Iðju um félagið „Virðingu“ sem stofnað hefur verið sem stéttarfélag án þess að uppfylla grundvallarskilyrði sem um slík félög gilda. 

FFÍ tekur undir varnaðarorð Eflingar til starfsfólks í veitingageiranum um að halda sig fjarri félaginu og að taka ekki þátt í starfsemi sem miðar að því einu að skerða kjör og grafa undan réttindum sem áunnist hafa með áratuga baráttu. Hér er um margra áratuga afturför að ræða á réttindum launafólks og sérstaklega láglaunafólks. 

Flugfreyjufélag Íslands hvetur stéttarfélög og launafólk á Íslandi að standa gegn þessari aðför að með ráðum og dáð. Stöndum vörð um það sem verkalýðshreyfingin hefur náð fram með áratuga baráttu sinni. 

F.h. stjórnar Flugfreyjufélags Íslands

Berglind Kristófersdóttir,

Formaður FFÍ