Framferði Virðingar misneyting og félagsleg undirboð segir VSFK 

11. 12, 2024

Verkalýðs-og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis segir kjarasamning Virðingar við SVEIT bera þess skýr merki að vera gerður að ósk launagreiðenda og lagaðan að þeirra þörfum. VSFK fordæmir alla slíka tilburði í yfirlýsingu og lýsir fullum stuðningi við Eflingu. 

Yfirlýsing vegna gerfistéttarfélagsins Virðingar

 Verkalýðs-og sjómannafélag Keflavíkur og nág.  fordæmir alla tilburði launagreiðanda til að stofna eigin stéttarfélag og þvinga starfsfólk til þátttöku í þeim með því að gefa rangar og villandi upplýsingar.  Það er ljóst að með sínu framferði er Virðing klárlega dæmi um félagsleg undirboð og misneytingu launagreiðenda gagnvart starfsfólki.  Samningur sem þeir kalla kjarasamningur félagsins ber þess skýrt merki að hann var gerður að ósk launagreiðenda og að þeirra þörfum.

VSFK lýsir fullum stuðningi við baráttu Eflingar við þessi launagreiðendasamtök á höfuðborgarsvæðinu og Einingar Iðju við sömu samtök á Eyjafjarðarsvæðinu.

Við munum fylgjast grannt með ástandi í veitinga – og gistihúsaumhverfinu á félagssvæði okkar og grípa til harðra aðgerða ef þetta gerfifélag gerir vart við sig á svæðinu.

Að sama skapi hvetjum við enn og aftur félagsmenn sem boðið eða ætlast er til að færi sig yfir í Virðingu að hafa samband við VSFK og fá upplýsingar um rétt sinn.