Sjómannasambandið segir gervistéttarfélagið Virðingu vera „skömm og svívirðu“ 

Sjómannasamband Íslands hefur sent Eflingu stéttarfélagi stuðningsyfirlýsingu vegna aðgerða þess gegn gervistéttarfélaginu Virðingu. Hvetur Sjómannasambandið stéttarfélög og launafólk til að standa gegn gervistéttarfélögum á borð við Virðingu með ráðum og dáð. „Stöndum þéttan vörð um það sem verkalýðshreyfingin hefur náð fram með áratuga baráttu sinni,“ segir í yfirlýsingu Sjómannasambandsins, sem fer hér að neðan. 

Stuðningsyfirlýsing Sjómannasambands Íslands vegna aðgerða gegn „stéttarfélaginu“ Virðingu

Reykjavík 9. desember 2024 

Virðing er gult stéttarfélag. Stofnað af atvinnurekendum sem einskis svífast til að brjóta á réttindum launafólks. Það er skömm og svívirða að svona nokkuð skuli látið viðgangast. Dagvinnutími útvíkkaður fram á kvöld og á laugardögum. 

Það liggur við að elstu menn muni ekki eftir dagvinnu fram á kvöld og á laugardögum. Hér er um afturför um marga áratugi að ræða á réttindum launafólks og sérstaklega láglaunafólks. Eins og það sé um einhver ofurlaun að ræða hjá því fólki sem vinnur þessi störf. Hafi þessir atvinnurekendur skömm og svívirðu fyrir lítilsvirðinguna. 

Sjómannasamband Íslands hvetur stéttarfélög og launafólk á Íslandi að standa gegn þessari svívirðu með ráðum og dáð. Látum ekki gervistéttarfélög komast upp með ósannindi og moðreyk. Stöndum þéttan vörð um það sem verkalýðshreyfingin hefur náð fram með áratuga baráttu sinni. 

F.h. stjórnar Sjómannasambands Íslands 

Valmundur Valmundsson 

formaður