Raunveruleg stéttarfélög eru stofnuð af launafólki án afskipta atvinnurekenda. Hið svokallaða stéttarfélag „Virðing“ er gervistéttarfélag, eins og tengsl þess við atvinnurekendafélagið SVEIT sýna með ótvíræðum hætti. SVEIT og Virðing hafa undirritað gervikjarasamning þar sem launakjör og réttindi starfsfólks eru skert verulega.
Efling hefur á undanförnum vikum yfirfarið tengsl stjórnarmanna í SVEIT og stjórnarmanna í gervistéttarfélaginu Virðingu við tiltekin fyrirtæki í veitingarekstri. Stuðst hefur verið við félagatal frá SVEIT, opinberar skráningar sem finna má hjá Skattinum og upplýsingar af vefsíðum þessara aðila.
Jafnframt hefur Efling átt í samskiptum við forsvarsmenn einstakra aðildarfyrirtækja SVEIT og við félagsfólk sem starfar hjá þeim. Á grunni þeirra samskipta telur Efling sig hafa nokkuð skýra mynd af því hvaða fyrirtæki hyggjast nýta sér gervikjarasamning SVEIT og Virðingar til að hlunnfara starfsfólk sitt.
Fjöldi fyrirtækja hafa upplýst Eflingu um úrsögn sína úr SVEIT eða veitt félaginu staðfestingu um að starfsfólki vinni ekki eftir gervikjarasamningi SVEIT við Virðingu. Þetta er mikill meirihluta þeirra fyrirtækja sem hafa verið á félagatali SVEIT.
Efling telur rétt að upplýsa neytendur, gestkomandi ferðamenn, félagsmenn og allan almenning um nöfn þeirra fyrirtækja sem virðast standa að baki gervikjarasamningi SVEIT við Virðingu þrátt fyrir erindi frá Eflingu og opinbera umræðu síðustu vikna.
Þessi fyrirtæki hafa ekki svarað erindum frá Eflingu og í sumum tilvikum eru til staðar nánari tengsl við SVEIT og/eða Virðingu. Í sumum tilvikum hafa Eflingu borist upplýsingar um að fyrirtækin hafi í reynd gengið svo langt að skráð starfsfólk í Virðingu.
ROK (Taste ehf.)
ROK er aðildarfyrirtæki SVEIT og hefur ekki svarað erindum frá Eflingu varðandi afstöðu fyrirtækisins til gervikjarasamnings við Virðingu, þrátt fyrir ítrekanir. Hrefna Björk Sverrisdóttir, sem er eigandi og framkvæmdastjóri ROK, er stofnandi, stjórnarmaður og fyrrum formaður SVEIT. Ronja Björk Bjarnadóttir, dóttir Hrefnu, er einn af stofnendum Virðingar og situr þar í varastjórn.
Subway (Stjarnan ehf.)
Subway er aðildarfyrirtæki SVEIT og hefur ekki svarað erindum frá Eflingu varðandi afstöðu fyrirtækisins til gervikjarasamnings við Virðingu, þrátt fyrir ítrekanir. Skúli Gunnar Sigfússon, sem er eigandi og framkvæmdastjóri Stjörnunnar hf., situr í stjórn SVEIT. Efling hefur undir höndum gögn sem sýna að starfsfólk Subway hefur verið látið greiða félagsgjöld til Virðingar.
Public House Gastropub (Gastropub ehf.)
Public House Gastropub er aðildarfyrirtæki SVEIT og hefur ekki svarað erindum frá Eflingu varðandi afstöðu fyrirtækisins til gervikjarasamnings við Virðingu, þrátt fyrir ítrekanir. Eyþór Mar Halldórsson, eigandi Public House Gastropub, er stjórnarmaður í SVEIT.
Hard Rock Cafe (HRC Ísland ehf.)
Hard Rock Cafe er aðildarfyrirtæki SVEIT og hefur ekki svarað erindum frá Eflingu varðandi afstöðu fyrirtækisins til gervikjarasamnings við Virðingu, þrátt fyrir ítrekanir.
Finnsson Bistro (K3 ehf.)
Finnsson Bistro er aðildarfyrirtæki SVEIT og hefur ekki svarað erindum frá Eflingu varðandi afstöðu fyrirtækisins til gervikjarasamnings við Virðingu, þrátt fyrir ítrekanir. Efling hefur staðfestar heimildir fyrir því að Óskar Finnsson, matreiðslumaður á Finnsson og stjórnarformaður K3 ehf., hafi lýst því yfir að hann muni skrá starfsfólk sitt í Virðingu og gefa þeim engan annan kost.