Í yfirlýsingu sem gervistéttarfélagið Virðing sendi frá sér í gær, og greint hefur verið frá í fjölmiðlum, segir að kjarasamningur Eflingar stéttarfélags sé ekki sniðinn að starfsumhverfi því sem ríki á veitingastöðum. Þetta er rangt.
Hið rétta er að í gildi er kjarasamningur milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsfólk hótela og veitingastaða, í daglegu tali nefndur hótel- og veitingasamningurinn.
Umræddur kjarasamningur var undirritaður 7. mars á þessu ári, sem hluti Stöðugleika- og velferðarkjarasamningsins 2024 – 2028, og samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu félagsfólks í Eflingu sem vinnur undir samningnum.
Hótel- og veitingasamningurinn er þá ekki nýr af nálinni heldur hefur hann verið við lýði um margra ára skeið. Í honum er sannarlega sérstaklega fjallað um starfsumhverfi veitingastaða, vinnutíma og kjör. Samningurinn er birtur á vefsíðu Eflingar, sem og launatöflur. Þá hefur Efling birt ítarlegan samanburð á svokölluðum kjarasamningi gervistéttarfélagsins Virðingar við SVEIT og á hótel- og veitingasamningnum.
Það vekur því furðu að forsvarsfólk gervifélagsins Virðingar láti nú í yfirlýsingu eins og kjarasamningur Eflingar og SA vegna starfsfólks á hótelum og veitingahúsum sé ekki til. Annað hvort er hér um markvissa tilraun til blekkinga að ræða af hálfu Virðingar eða víðtækt þekkingarleysi.
Hvort heldur sem er rétt er hvoru tveggja mjög alvarlegt. Ef Virðing er vísvitandi að reyna að blekkja fjölmiðla og almenning er það skammarleg og ósiðleg framganga. Ef forsvarsfólk Virðingar á hinn bóginn þekkir ekki til hótel- og veitingasamningsins er það háalvarlegt í ljósi þess að fyrir félaginu fer fólk sem rekur veitingahús. Sem aftur sýnir ljóslega að Virðing er ekki raunverulegt stéttarfélag heldur gervistéttarfélag.
Að öðru leyti ítrekar Efling allan fyrri málflutning sinn varðandi gervistéttarfélagið Virðingu og svikasamning þess við SVEIT.
Ef atvinnurekandi hefur látið, eða reynt að láta, félaga í Eflingu skrifa undir ráðningarsamning þar sem vísað er til svikasamnings Virðingar og SVEIT, eða ef félagar í Eflingu telja verið sé að greiða þeim laun eftir svikasamningnum, ættu þeir tafarlaust að hafa samband við Eflingu. Það er hægt að gera á tilkynningasíðu sem má finna hér.