Félags- og trúnaðarráðsfundur helgaður ræstingafólki þann 5. mars

26. 02, 2025

Boðað er til sameiginlegs félags- og trúnaðarráðsfundar í Eflingu stéttarfélagi miðvikudaginn 5. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Fosshoteli Reykjavík, Þórunnartún 1, í salnum Gullfoss og hefst klukkan 18:00.  

Húsið opnar klukkan 17:30 með veitingum. Að venju verður textatúlkun milli íslensku og ensku á skjá. 

Fundurinn er helgaður samstöðu með ræstingafólki í Eflingu. Ræstingafólk innan Eflingar er því boðið sérstaklega velkomið á fundinn og hvatt til að fjölmenna. 

Farið verður yfir þá alvarlegu stöðu sem ríkir í málefnum ræstingarfólks og helstu aðgerðir félagsins vegna fregna um óásættanlegar launalækkanir hjá starfsfólki sumra ræstingafyrirtækja. 

Dagskrá: 

  1. Staða ræstingafólks innan félagsins. Umræður. 
  2. Fregnir úr starfi félagsins. 
  3. Önnur mál. 

Áætlað er að fundi verði lokið fyrir klukkan 20:00. 

Allir félagsmenn eru velkomnir á fundinn en ræstingafólk er sérstaklega hvatt til að mæta. Þau sem vilja skrá sig á fundinn eru beðin um að staðfesta komu hér fyrir neðan: