Aðalfundur Eflingar stéttarfélags 2025

18. 03, 2025
Mynd frá aðalfundi Eflingar stéttarfélags 2024

Aðalfundur Eflingar – stéttarfélags 2025 verður haldinn miðvikudaginn 16. apríl klukkan 18:00 á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. 

Dagskrá: 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
  3. Lýst kjöri stjórnar, trúnaðarráðs og stjórna sjóða
  4. Önnur mál

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Athygli er vakin á því að aðeins fullgildir Eflingarfélagar hafa setu- og atkvæðisrétt á fundinum. Hægt er að sækja um fullgildingu félagsaðildar í gegnum Mínar síður Eflingar. 

Allir Eflingarfélagar eru hvattir til að mæta!

Eflingarfélagar eru vinsamlega beðnir að skrá sig á fundinn með eyðublaðinu hér fyrir neðan: