Þann 1. apríl munu laun Eflingarfélaga sem starfa hjá Reykjavíkurborg, ríkinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og hjúkrunarheimilum (SFV) hækka samkvæmt kjarasamningum.
Launahækkunin kemur til útborgunar 1. maí næstkomandi. Eflingarfélögum er bent á að fara vel yfir launaseðla sína og tryggja að launahækkanir hafi skilað sér. Ef meinbugir eru þar á er mikilvægt að gera atvinnurekanda þegar viðvart og fara fram á tafarlausa leiðréttingu. Starfsfólk Eflingar er boðið og búið til að aðstoða félaga ef þörf krefur í þessum efnum.
Starfsfólk hjá Reykjavíkurborg:
Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu skulu hækka um 3,5%, en þó aldrei minna en um 23.750 krónur, nema að annað leiði af launatöflum sem fylgja kjarasamningi.
Kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækka um 3,5%, nema að um annað hafi verið samið.
Starfsfólk hjá ríkinu:

Starfsfólk hjá íslenskum sveitarfélögum:
Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu skulu hækka um 3,5%, en þó aldrei minna en um 23.750 krónur, nema að annað leiði af launatöflum sem fylgja kjarasamningi.
Kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækka um 3,5%, nema að um annað hafi verið samið.
Starfsfólk hjá hjúkrunarheimilum (SFV):