Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) og gervistéttarfélagið Virðing hafa útbúið nýjan svokallaðan kjarasamning sín á milli. Þrátt fyrir breytingar á fyrri samningi er hinn nýi samningur enn óhagstæður stærstum hluta starfsfólks á veitingamarkaði. Efling hvetur félagsfólk sitt eindregið til að hafa samband og sækja sér aðstoð félagsins reyni atvinnurekendur að þvinga það til að undirgangast umræddan samning. Hægt er að hafa samband í gegnum eyðublað sem finna má hér.
Sem kunnugt er, og Efling stéttarfélag benti skilmerkilega á, var fyrri samningur þessara aðila ósamrýmanlegur við íslensk lög og alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist. Í nýjum samningi hefur vissulega verið brugðist við og þeim ákvæðum sem gengu gegn lögum breytt. Hins vegar eru ýmis réttindi enn mun lakari en í gildandi og löglegum samningi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.
Dagvinnutími lengdur um þrjár klukkustundir
Það sem einna mestu máli skiptir er að svokallaður kjarasamningur SVEIT og Virðingar inniber, þrátt fyrir að dagvinnutaxti sé í hinum nýja samningi lítillega hærri en í kjarasamningi Eflingar við SA, umtalsvert lakari launakjör fyrir þorra starfsfólks á veitingahúsamarkaði. Skýrist það af því að dagvinnutími samkvæmt samningnum er lengdur um þrjár klukkustundir dag hvern. Samkvæmt samningnum telst tíminn milli 17:00 og 20:00 til dagvinnutíma og eru því greidd dagvinnulaun fyrir vinnu á þeim tíma. Í samningi Eflingar við SA er hins vegar greidd yfirvinna á þessum tímum. Sömuleiðis er álagsprósenta fyrir kvöld- og helgarvinnu lægri en í samningi Eflingar og SA.
Munar tugum þúsunda
SVEIT hefur sjálft haldið því fram að 56% vinnutíma starfsfólks á veitingamarkaði fari fram utan dagvinnutíma. Samningurinn leiðir þannig til kjaraskerðingar fyrir þá sem að vinna meira á kvöldin og/eða um helgar, og kemur sérstaklega illa við hlutastarfsfólk.
Útreikningar Eflingar sýna þetta svart á hvítu. Byrjunarlaun 22 ára almenns starfsmanns á veitingahúsi eru þannig 41.507 krónum hærri samkvæmt samningi Eflingar og SA heldur en þau væru samkvæmt samningi SVEIT og Virðingar. Frá og með 1. apríl næstkomandi eykst munurinn í 45.081 krónu. Í báðum tilvikum er um að ræða starfsmann sem vinnu eftir svokölluðu rúllandi vaktakerfi sem algengt er á veitingahúsum og inniber vinnu til klukkan 22:00 flest kvöld og fjóra helgardaga unna í mánuði. Samtals vinnur starfsmaðurinn 171 klukkutíma á mánuði. Sjá má nánari útreikninga í skjali neðst í fréttinni.
Ólögmætur samningur
Efling stéttarfélag ítrekar allan fyrri málflutning sinn varðandi tilraunir SVEIT og gervistéttarfélagsins Virðingar til að veikja kjör starfsfólks í veitingageiranum. Virðing er ekki raunverulegt stéttarfélag, heldur framlenging á hagsmunum atvinnurekenda. Félagið er enda stofnað að frumkvæði veitingamanna, af veitingamönnum sjálfum eða fólki tengdum þeim nánum böndum. Samningur á milli SVEIT og Virðingar er því ekki raunverulegur kjarasamningur heldur einhliða gjörð atvinnurekenda. Hann er því ólögmætur og felur í sér ólögmætt samráð.
Efling hvetur félagsfólk sitt, sem og öll þau sem starfa á veitingahúsum, til að hafa samband búi þau yfir vitneskju um að atvinnurekendur beiti hinum ólögmæta samningi. Það má gera á eyðublaði sem hægt er að finna hér, með því að senda tölvupóst á vinnurettindi@efling.is eða með því að hringja í síma 510-7500.
Starfsfólk Eflingar er boðið og búið til að leiðbeina og aðstoða öll þau sem á þurfa að halda, til að sækja þann sjálfsagða rétt sinn að starfa samkvæmt löglegum og gildandi kjarasamningi Eflingar og SA en vera ekki neydd til að starfa undir ólögmætum gervikjarasamningi.