Árlega efnir Efling stéttarfélag til ljósmyndasamkeppni á meðal félagsfólks. Þema keppninnar er frí innanlands, og því er kjörið að nýta sumarferðalagið eða sumarbústaðaferðina til að fanga augnablikið með myndavélinni. Í ár var sú ákvörðun tekin að hækka verðlaun fyrir þriðja sætið úr 15.000 kr gjafakorti upp í 25.000 kr gjafakort.
Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin:
- sætið: 50.000 kr gjafakort
- sætið: 25.000 kr gjafakort
- sætið: 25.000 kr gjafakort
Myndirnar skulu vera í góðum gæðum og ekki er heimilt að senda inn fleiri en þrjár myndir frá hverjum keppanda.
Skila þarf myndinni ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer í tölvupósti á netfangið efling@efling.is með viðfangsefninu „Ljósmyndasamkeppni“.
Athugið að ljósmyndasamkeppnin er eingöngu ætluð félagsfólki Eflingar.
Skilafrestur er 29. ágúst 2025.
Vinningshafar verða tilkynntir 12. september 2025.
Hér fyrir neðan má sjá sigurmyndina frá því í fyrra eftir Ingveldi Kristjánsdóttur af kríu á íslenskum sumardegi í Flatey á Skjálfanda.