Efling gefur boli í tilefni af 50 ára afmæli Kvennafrídagsins 

27. 06, 2025

Fimmtíu ár verða liðin 24. október næstkomandi frá Kvennafrídeginum, þegar íslenskar konur lögðu niður vinnu til að leggja áherslu á mikilvægi þeirra á vinnumarkaði. Í tilefni af því hefur Listasafn ASÍ látið framleiða stuttermaboli með mynd Ragnheiðar Jónsdóttur myndlistarkonu. Efling býður nú félagsfólki sínu 30 boli gefins, og gildir þar reglan fyrst koma, fyrst fá. 

Kvennasamtök, kvenfélög og stéttarfélög skipulögðu árið 1975 Kvennafrídaginn, í tilefni þess að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna helgaði áratuginn 1975 til 1985 málefnum kvenna. Talið er að allt að 90% kvenna á Íslandi hafi lagt niður vinnu 24. október 1975. Um 25 þúsund konur söfnuðust saman á útifundi á Lækjartorgi og víða annars staðar um landið söfnuðust konur einnig saman, til að leggja áherslu á mikilvægi vinnuframlags kvenna. 

Ragnheiður gerði tvö grafíkverk í kjölfar kvennaverkfallsins. Grafíkverkið „24. október, 23 mínútur gengin í þrjú“ sýnir mannmergðina á Lækjartorgi og Arnarhóli, umhverfis gömlu klukkuna sem enn stendur á torginu og fyrir framan Stjórnarráðshúsið. Það er sú mynd sem Listasafn ASÍ hefur nú látið prenta á boli. 

Bolirnir sem Efling býður nú félagsfólki Eflingar að gjöf eru sem fyrr segir 30 talsins, í stærðum s-xxl. Þeir eru ýmist svartir eða hvítir. Hægt er að nálgast bolina í móttöku skrifstofu Eflingar, Guðrúnartúni 1 á 4. hæð. Opið er til klukkan 14:00 í dag, á föstudegi, en frá klukkan 9:00-15:00 aðra daga.